‘GIMME GIMME GIMME’ MEIRI MANIA! 
 
Eftir tvær uppseldar sýningar 2025 snýr Mania: The ABBA Tribute aftur til Íslands í september, og lofa fullkominni afsökun til að skemmta sér! 
 
Mania: The ABBA Tribute er vinsælasta ABBA sýning í heimi og hefur verið sýnd í yfir 35 löndum síðustu tvo áratugi. Milljónir gesta hafa skemmt sér konunglega á Mania: The ABBA Tribute. Uppselt var á sýninguna í Shaftesbury leikhúsinu í West End 2021 og á alls 80 sýningum um öll Bandaríkin 2022 og 2023. 
 
Með einstökum hópi hæfileikaríkra tónlistarmanna og flytjenda býður Mania: The ABBA Tribute upp á ósvikna og ógleymanlega sýningu til heiðurs til þessarar goðsagnakenndu, sænsku hljómsveitar sem hefur heillað hjörtu aðdáenda í heilar kynslóðir. 
 
Með stórkostlegum búningum, kraftmikilli danshöfundargerð og óaðfinnanlegum tónlistarhæfileikum endurskapar Mania: The ABBA Tribute töfra lokatónleika ABBA í allri sinni dýrð. Frá Dancing Queen til Waterloo, Mamma Mia til Take a Chance on Me flytur hljómsveitin alla stærstu smelli ABBA af ástríðu og nákvæmni og flytur áhorfendur aftur til diskótímabilsins á áttunda áratugnum. 
 
Svo taktu fram stígvélin, dustaðu rykið af víðu buxunum og fáðu vinina þína til að koma saman og skemmta sér! 

Mania: The ABBA Tribute Bóka miða 

Eldborg og Hof: Það verða einn sýningar kl 20.00. 
 
Eldborg: Miðaverð er frá 5,990 kr til 15,990 kr og eru nú komnir í sölu hjá Hörpu og Tix.is. 
Hof: Miðaverð er frá 9,990 kr til 14,990 kr og eru nú komnir í sölu hjá Hof og Tix.is. 
Miðaflokkur 
Miðaverð 
Eldborg 
Miðaverð 
Hof 
15,990 kr 
— 
14,990 kr 
14,990 kr 
11,990 kr 
12,990 kr 
9,990 kr 
9,990 kr 
7,990 kr 
— 
5,990 kr 
— 
Sir Bryn Tefel mætir í Hörpu 
 
Sir Bryn Tefel, sem er álitinn besti bassa-baritón heims, heldur áfram að koma fram í frægustu óperuhúsum og tónlistarhöllum um heiminn. Nú kemur hann í Hörpu eina kvöldstund þar sem áheyrendum gefst kostur á að njóta einstakra hæfileika hans. Bryn er þekktur um heim allan fyrir kraftmikla söngrödd sína og magnaða nærveru og er sannarlega meistari á sínu sviði. 
 
Þessir einsöngstónleikar eru fágætt tækifæri til að heyra Bryn syngja í návígi og flytja tónlist sem er honum afar hugleikin. Frá velskum þjóðlögum sem enduróma frá heimahögum hans, til frægra laga úr söngleikjum, lieder og óperum, mun mögnuð rödd hans mun fylla Eldborgarsalinn og skína skært. 
 
Með Bryn á sviðinu verður píanóleikarinn þekkti Annabel Thwaite, og hörpuleikarinn Hannah Stone, sem er eiginkona hans og samstarfsaðili til fjölda ára. Hún var m.a. einka-hörpuleikari Karls Bretakonungs í fjögur ár. Saman hverfa þau aftur til upprunans og þess sem mestu máli skiptir: fagurrar tónlistar, fluttrar af einlægni og sál. 
 
Það er sjaldgæft að sjá listamann sem er jafnvígur á svo marga ólíka stíl, og enn sjaldgæfara að upplifa það allt á einum tónleikum. Þetta er einstakt tækifæri til að njóta heildarmyndar af Bryn Terfel – sagnamanninum, skemmtikraftinum og einum fremsta óperusöngvara heims í dag. 
 
,,Besti bassa-baritón söngvari heims."  
Katherine Jenkins, The Sunday Times, UK 

Bryn Terfel Bóka miða 

Það verða einn sýningar kl 20.00. 
 
Miðaverð er frá 6,990 kr til 19,990 kr og eru nú komnir í sölu hjá Hörpu og Tix.is. 
Miðaflokkur 
 
19,990 kr 
17,990 kr 
13,990 kr 
11,990 kr 
8,990 kr 
6,990 kr 
CELEBRATING GEORGE MICHAEL 
 
Njótið tónlistar George Michael í flutningi stórkostlegs söngvara og hljómsveitar sem er með upprunalegan bassaleikara Wham innanborðs. 
 
Sýningin ‘Celebrating George Michael’ hefur heillað áhorfendur í Bretlandi og um alla Evrópu og nú kemur hún til Íslands. Sýningin heldur minningu George Michael á lofti og rekur feril hans allt frá gleðipoppi Wham! til tilfinningaþrunginna hátinda á sóloferli hans. 
 
Steve Mitchell bregður sér hér í hlutverk poppgoðsins, en hann er talinn vera einn besti flytjandi laga George Michael í heiminum. Hann er kraftmikill og tilfinningaríkur, rétt eins og fyrirmyndin. Hann flytur ekki einungis lögin heldur endurlífgar einnig anda George Michael og viðheldur þannig arfleifð eins besta popptónlistarmanns sögunnar. 
 
Dave West, fyrrum bassaleikari Wham, eykur enn á nándina við George Michael, en hann starfaði með honum og Andrew Ridgeley í fyrstu upptökunum á Wham Rap, Careless Whisper og Club Tropicana. Með honum í hljómsveitinni eru svo frábærir hljóðfæraleikarar sem hafa komið fram með mörgum af fremstu tónlistarmönnum heims, svo sem Nile Rodgers & Chic, Brian May, Simply Red, Kylie Minogue og mörgum fleiri. 
 
Steve Mitchell mun, ásamt hæfileikaríkum bakraddasöngvurum, flytja öll vinsælustu lögin, allt frá danssmellum (Wake Me Up Before You Go Go, Faith, Freedom '90) til ballaða (Careless Whisper, One More Try, Father Figure og Last Christmas), sem gerðu George Michael að stórstjörnu um allan heim. 
 
„Steve hefur rödd George Michael, hversu ótrúlega sem það kann að hljóma. Lokið bara augunum og þá er eins og þið séuð að hlusta á George Michael." - BBC 

Celebrating George Michael Bóka miða 

Eldborg og Hof: Það verða einn sýningar kl 20.00. 
 
Eldborg: Miðaverð er frá 6,990 kr til 16,990 kr og eru nú komnir í sölu hjá Hörpu og Tix.is. 
Hof: Miðaverð er frá 9,990 kr til 14,990 kr og eru nú komnir í sölu hjá Hof og Tix.is. 
Miðaflokkur 
Miðaverð 
Eldborg 
Miðaverð 
Hof 
16,990 kr 
— 
15,990 kr 
14,990 kr 
12,990 kr 
12,990 kr 
10,990 kr 
9,990 kr 
8,990 kr 
— 
6,990 kr 
—