The Definitive Rat Pack 27. mars 2026 

Upplifið gullöld sveiflunnar þar sem Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. – stórstjörnurnar úr hinum svokallaða Rat Pack sem tóku Las Vegas með trompi á sjöunda áratugnum - eru sem ljóslifandi í þessari einstöku og stórskemmtilegu sýningu. 
 
The Definitive Rat Pack eru upprunalegu meðlimir úr hinni vinsælu West End sýningu The Rat Pack – Live from Las Vegas sem var sýnd í meira en fimm ár. Stephen Triffitt (Frank), George Daniel Long (Sammy) og Mark Adams (Dean) hafa í meira en tvo áratugi endurskapað skerf af skemmtanasögunni og líkt, af mikilli einlægni og ótrúlegri nákvæmni, eftir röddum og sviðs-persónuleikum þessara þriggja heimsfrægu söngvara. 
 
Ásamt hinum heillandi Golddiggers bakraddasöngvurum og frábærri níu manna stórsveit (Big Band) skapa þeir töfrandi tónlistarsýningu með þekktum lögum eins og Fly Me to the Moon, Chicago, My Way, That’s Amore, Ain’t That a Kick in the Head, Everybody Loves Somebody, Mr Bojangles, Mack the Knife og að sjálfsögðu New York New York svo nokkur séu nefnd. 

The Ultimate Eagles 21. febrúar 2026 

The Ultimate Eagles er almennt talin fremsta tónleikasýning heims til heiðurs Eagles. Um er að ræða alþjóðlega sýningu sem hefur verið sýnd frammi fyrir meira en milljón manns á heimsvísu með mjög vel heppnuðum tónleikaferðalögum á Norðurlöndunum sem og víðar í Evrópu auk Ástralíu og Nýja Sjálandi. The Ultimate Eagles eru orðnir stórt og sjálfstætt nafn, virtir og vel metnir af tónlistariðnaðinum og elskaðir af gríðarlega stórum aðdáendahópi. 
 
The Ultimate Eagles samanstendur af fimm heimsklassa tónlistarmönnum sem hafa spilað allan sinn tónlistarferil á hæsta stigi. Þeir hafa spilað á tónlistarhátíðum og deilt sviðinu með tónlistarmönnum eins og Queen, Status Quo, Roger Daltrey, Lulu, Van Morrison, Cliff Richard, Joe Cocker, Stevie Wonder, Paul McCartney, Ringo Starr og að sjálfsögðu sjálfum Eagles. 
 
Á heimsvísu eru þeir taldir hinir bestu í heiðursflutningi á tónlist Eagles. Hljómsveitin flytur klassísk lög frá öllum hljómplötum og öllum tímabilum, og skila af sér 40 árum af snilld með bæði nákvæmni og virðingu. Magnaður söngur og goðsagnakennd gítarsóló eru endursköpuð af einlægni í frægum lögum eins og Hotel California, Life in the Fast Lane, Take it Easy, Lyin’ Eyes, Desperado, Take It To The Limit, Peaceful Easy Feeling og fleirum. 
 
Njótið ferðalags aftur til hinnar sólríku Kaliforníu til gullna tímabils áttunda áratugarins með The Ultimate Eagles. 

The Legend of Springsteen 20. febrúar 2026 

Í kjölfar metsölutónleika um alla Evrópu kemur The Legend of Springsteen til Íslands í fyrsta skipti með væb, gleði og hráa orku ,,The Boss" og E Street rokksveitarinnar sem einkenndi gullna tímabilið þeirra! 
 
Þessi óstöðvandi hraðlest keyrir í gegnum tónleikahöllina með klassískum rokklögum hins goðsagnakennda Bruce Springsteen með allri ástríðunni og kraftinum sem hægt er að búast við frá Bruce sjálfum, flytjandi fræga slagara eins Born to Run, Dancing in the Dark, The River, Hungry Heart, Glory Days, Born in the USA og marga fleiri. 
 
Þessi magnaða sýning býður upp á flutning alþjóðlegra og nafntogaðra tónlistarmanna sem hafa komið fram á tónlistarviðburðum og deilt sviðinu með listamönnum eins og Journey, Joe Cocker, Paul Young, Ringo Starr, The Commitments, Go West, Bonnie Tyler, John Legend og mörgum fleiri. 
 
Þar sem þeir votta virðingu sína einum af bestu söngvurum og lagahöfundum heilar kynslóðar, þá er heimspeki þeirra einföld: ,,Að fagna tónlist The Boss og flytja hana með nákvæmni, viðringu, og ástríðu. Og allt sem við höfum. Alla liðlanga nóttina." 

Mania: The ABBA Tribute 27. september 2025 

Frá West End í London til Las Vegas í Bandaríkjunum. Mania: The ABBA Tribute er vinsælasta ABBA sýning í heimi og hefur verið sýnd í yfir 35 löndum síðustu tvo áratugi. Milljónir gesta hafa skemmt sér konunglega á Mania: The ABBA Tribute. Uppselt hefur verið á sýninguna í Shaftesbury leikhúsinu í West End síðan 2021 og á alls 80 sýningum um öll Bandaríkin 2022 og 2023. 
 
Mania: The ABBA Tribute skartar ótrúlega hæfileikaríkum flytjendum og tónlistarfólki. Sýningin býður upp á magnaðan og ógleymanlegan flutning á lögum hinnar goðsagnarkenndu sænsku hljómsveitar ABBA sem hefur hrifið hjörtu fólks í áratugi. 
 
Með hrífandi tveggja klukkustunda endursköpun á síðustu tónleikum ABBA mun Mania vekja til lífsins glæsibrag áttunda áratugarins sem og frábær lög hinnar heimsþekktu sænsku sveitar í lifandi flutningi með magnaðri sviðssetningu, búningum og lýsingu. 
 
Mania kemur nú í fyrsta skipti til Íslands. Þetta eina kvöld er því hin fullkomna stund til að skemmta sér og leyfa sér að njóta frábærrar tónlistar og uppáhaldslaga margra eins og Mamma Mia, Voulez Vous, Dancing Queen, The Winner Takes it All, SOS, Fernando, Does Your Mother Know, Gimme! Gimme! Gimme!, Waterloo og fleiri annarra. 

A Country Night in Nashville 26. september 2025 

A Country Night in Nashville kemur beint frá Royal Albert Hall í London og hefur metsölu tónleikaferðalag í Bretlandi. Ein heitasta kántrý hljómsveit heims í dag Dominic Halpin and the Hurricanes mun flytja mörg af frægustu lögum stærstu kántrí stjarnanna bæði lifandi og liðinna. 
 
Dominic Halpin er einstaklega sjarmerandi söngvari og mætir í Hörpu ásamt hæfileikaríkri hljómsveit sinni sem munu endurskapa honky-tonk stemmninguna í Nashville og munu fanga orkuna og andrúmsloftið í heimabæ kátrítónlistarinnar. 
 
Verið viðbúin að umbreytast á tónlistarferðalagi sem spannar nokkra áratugi með léttleika og hjartnæmum söng og hljóðfæraleik með lögum Johnny Cash, Dolly Parton, Willie Nelson, Patsy Cline, The Chicks, Shania Twain og Lady A svo nokkrir séu nefndir. 
 
Þessi ótrúlega veisla af kántrítónlist er mögnuð upplifun sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. 

Taylor Swift by Xenna 29. mars 2025 

Töfrandi heimur Taylor Swift kemur til Íslands í rafmagnaðri sýningu bresku söngkonunnar Xenna í Hörpu. Um er að ræða stórkostlega tveggja klukkustunda tónlistarveislu með öllum helstu smellum stjörnunnar, fullkomnuð með frábærum dönsurum og hljómsveit sem og magnaðri sviðsframkomu sem hún er þekkt fyrir. Sýningin tekur áhorfendur í spennandi ferðalag um ótrúlega viðburðarríkan feril Taylor Swift sem spannar frá kántrítónlist til heitustu poppsmella. 
 
Söngkonan Xenna er gríðarlega hæfileikarík og nær á lýtalausan hátt að fanga rödd og öfluga sviðsframkomu Taylor Swift sem hafa gert hana að hæst launuðustu stórstjörnu á tónlistarsviði heimsins í dag. 
 
Xenna mun hrífa áhorfendur í Hörpu með lögum Taylor Swift eins og Love Story, Blank Space, We Are Never Ever Getting Back Together, Anti-Hero, Look What You Made Me Do, Shake It Off. 
 
Sama á hvaða aldri þú ert eða hvort sem þú ert dyggur aðdáandi Taylor Swift eða einfaldlega hefur yndi af góðri tónlist þá er Taylor Swift by Xenna stórkostlegur tónlistarviðburður sem þú ættir ekki að láta fram hjá þér fara. 

Emilio Santoro as Elvis 20. september 2024 og 2. maí 2026 

SIGURVEGARI 
ULTIMATE ELVIS TRIBUTE ARTIST 2024 
 
Söngvarinn Emilio Santoro, sem hlaut titilinn ‘Ultimate Elvis Tribute Artist World Champion 2024’ frá Elvis Presley Enterprises á Graceland, snýr aftur til Íslands vegna mikillar eftirspurnar með Elvis verðlaunasýningu sína. 
 
Strax eftir að hafa tryggt sér titilinn á heimili konungs rokksins í Memphis Tennessee á síðasta ári, kom Emilio með sýningu sína í Hörpu í fyrsta skipti og hristi heldur betur upp í áhorfendum sem flestir voru staðnir á fætur syngjandi og kölluðu eftir að hann kæmi aftur. 
 
Nú mun hinn 23 ára gamli söngvari stíga enn eina ferðina í bláu rúskinns-skóna og túlka Elvis á hans yngri árum með magnaðri sýningu í maí. Studdur af öflugri sjö manna hljómsveit sinni The Creoles, mun Emilio heilla áhorfendur með einstaklega sannfærandi og nákvæmum flutningi á mörgum af stærstu rokksmellum allra tíma, þar á meðal Jailhouse Rock, Devil in Disguise, Can't Help Falling in Love, Hound Dog, Always on My Mind og mörgum fleiri. 
 
Þú munt hvorki trúa eigin augum - né eyrum!